Öskudagur í skólanum

07.03 2011 - Mánudagur

Á morgun, öskudag, byrjar skólinn kl. 8:30 en gæsla er frá kl. 8:10. Nemendur og starfsfólk  mæta í öskudagsbúningum eða klæða sig á sérstakan hátt. Æfðir eru söngvar í upphafi dags og  fyrir klukkan tíu er farið í skipulögðum hópum, yngstu í fylgd þeirra eldri, út í bæ til að syngja fyrir fólk í fyrirtækjum og stofnunum og fá kannski lítlræði í staðinn.

Um klukkan 11:30  koma síðan allir saman í íþróttahúsinu þar sem allir kynna þær persónur sem þeir eru og kötturinn er sleginn úr tunnunni. Hádegismatur er á sínum stað og eftir hann er öskudagsball í Drekanum.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir