Öskudagurinn ánægjulegur að vanda

10.03 2011 - Fimmtudagur

Þeir voru skrautlegir hóparnir sem heimsóttu sveitarskrifstofuna í gær, svo á að vera á öskudaginn. Eins og gengur var söngurinn misjafn, allir lögðu sig þó fram en sem annað lag á dagskrá, uppklapp, var „Krummi krunkar úti“ ofarlega á vinsældalist flytjenda. Allir hlutu að launum nammipoka með ögn af góðgæti ásamt öskupoka að hætti Birgittu – vöktu þeir ekki síður ánægju meðal söngfuglanna ungu en sælgætið.

 

Sú hefð sem hér hefur skapast er öðrum til eftirbreytni; krakkarnir koma saman í skólanum, þau elstu halda utan um þau yngstu og þess gætt að enginn verði útundan. Auk þess fer einkar vel á að enda öskudaginn á samverustundinni í íþróttahúsinu hvar krakkarnir slá köttinn úr tunnunni, úr tveimur tunnum þar sem hópnum er aldursskipt. Eins er magnað að sjá til starfsmanna skólans, sem taka að fullu þátt í deginum með því að klæða sig upp og rölta í fyrirtæki til þess að kyrja söngva – og gera það vel!

 

Svo fór að Albert Jóhannsson var tunnukóngur hinna eldri en Hákon Ingi Stefánsson meðal hinna yngri eftir mikinn barning í báðum tilfellum. Alltaf er það nokkur upphefð að vinna til þessa titils og að ári verður þess einmitt getið að þessir tveir piltar voru tunnukóngar sl. árs :-)

 

Eins og svo mjög oft áður var heimildarmaður með krampa á myndavélatakkanum og tók urmul mynda frá þessum skemmtilega degi og er myndasyrpuna alla að finna á heimasíðu grunnskólans, www.vopnaskoli.is





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir