Árshátíð skólans verður með svipuðu sniði og undanfarin ár. Til þess að hátíðin takist sem best þarf að ætla góðan tíma í undirbúning. Æfingar taka tíma frá hefðbundnu námi en í þess stað læra nemendur ýmislegt sem nýtist þeim vel í framtíðinni. Þau æfast í tjáningu, framsögn, framkomu, einbeitingu, aga og hegðun á svona samkomum. Síðasta vikan fer að miklu leyti í æfingar og fimmtudaginn 24. mars er lokaæfing .
Á árshátíðardaginn er ekkert skólastarf fyrir hádegi en nemendur eiga að mæta hálftíma fyrir dagsýningu og vel fyrir kvöldsýningu. Allir nemendur og starfsfólk koma á einhvern hátt að hátíðinni en nemendur borga sig inn á dagsýninguna, kr. 500, en ekki á kvöldsýningu. Þeim er raðað í sæti eftir aldri, yngstu fremst og svo koll af kolli upp í 6. bekk. Ætlast er til að foreldrar nemenda í 1.-3. bekk hafi eftirlit með sínum börnum eftir að þeirra atriðum lýkur á kvöldsýningu. Elstu leikskólanemendum er ætlað sæti á fremsta bekk á dagskemmtun og krakkar á leikskólaaldri fá frían aðgang.
Skólaakstur er á og af báðum sýningum.
Kaffihlaðborð er í hléi eins og endranær og er verð 1000 kr. fyrir fullorðna, 500 kr. fyrir börn og frítt fyrir leikskólabörn.
Kökur og annað bakkelsi eru nemendur í 7.-10. bekk beðnir að koma með og skila í Miklagarð kl. 10-11 á árshátíðardaginn.
10.bekkur og helmingur af 9.bekk koma með 2 stk. af rjóma-/marenstertum eða þess háttar. Aðrir í 9.bekk og 8. bekkur koma með 2 stk. af brauðtertum og brauðréttum. 7. bekkur kemur með 1 stk. af krem-/súkkulaðitertu eða öðru.
Ef tveir nemendur eru frá sama heimili þurfa þeir aðeins að koma með þrenns konar bakkelsi.