Flestir geta verið sammála um að heilbrigði sé mikilvægur þáttur í lífi og starfi hvers og eins. Mikil vakning hefur orðið í þessum málum að undanförnu og mikilvægt er að skólinn leggi sitt að mörkum til þess að hvetja nemendur og starfsfólk að huga að heilsusamlegu líferni. Heildstæð heilsueflingastefna, sem er samtvinnuð skólastarfinu, er líklegri til að stuðla að góðri heilsu og góðum námsárangri nemenda. Góð heilsa hefur jákvæð áhrif á námsárangur. Aðalmarkmið skóla er að námsárangur og líðan nemenda verði sem bestur. Heilsueflandi grunnskólar leggja mikið að mörkum til þess að skólanir nái náms- og samfélagsmarkmiðum sínum.
Með því að vera þátttakandi í þessu verkefni erum við að vinna eftir heildstæðri heilsueflingastefnu sem tekur á eftirfarandi þáttum:
Hreyfing/ öryggi- dagleg hreyfing við öruggar aðstæður
Mataræði/tannheilsa - matur og drykkir í samræmi við ráðleggingar um næringu
Geðrækt – jákvæð, örugg og traust samskipti
Lífsleikni- skýr forvarnarstefna
Heimili- góð tengsl og samvinna á milli skóla og heimilis
Nærsamfélag –virkt samstarf við nærsamfélagið
Nemendur – virkt nemendalýðræði
Starfsfólk- velgegni og vellíðan starfsfólks
Í stýrihópnum eru aðilar úr öllu skólasamfélaginu og hann skipa:
Bjarney Guðrún Jónsdóttir, íþróttakennari
Debóra Dögg Jóhannsdóttir, nemandi í 9. Bekk
Hrafnhildur Ævarsdóttir, foreldri
Sigríður Elva Konráðsdóttir, aðstoðarskólastjóri
Svava Birna Stefánsdóttir, kennari
Helstu áherslur verða eftirfarandi:
Vor 2011- Mataræði og tannheilsa
Veturinn 2011-2012- Hreyfing/öryggi og heimili