Með samstilltu átaki starfsmanna og foreldra er þessi hátíð mjög sérstök. Ekki er sjálfgefið að starfsmenn séu tilbúnir að ganga í hin fjölbreyttustu verk, uppvask, þrif og annað. Þá er þjáfun krakkanna á sviði mikil og öðruvísi vinna. Foreldrar elstu bekkja sjá um að útvega góðar kökur á hlaðborðið við kaffisöluna og ýmislegt fleira má tína til. Síðan hefur það ekki brugðist að mikill áhugi er hjá fólkinu til að sækja hátíðina sem hvetur okkur til dáða til að leggja okkar að mörkum til að allt takist sem best, betra í ár en í fyrra er okkar metnaður. Þá má ekki gleyma góðum stuðningi fyrirtækja og stofnana í byggðarlaginu með fjárstuðningi og happdrættisvinningum. Fyrir hönd skólans vill skólastjóri því þakka öllu starfsfólki, foreldrum og öllum sem sýndu okkur stuðning með því taka þátt eða styðja okkur á annan hátt.