PMT foreldranámskeið: eru fyrir foreldra barna með væga hegðunarerfiðleika eða sem eru í áhættu vegna hegðunarerfiðleika. Um er að ræða átta vikna hópnámskeið þar sem 10-12 foreldrar fá ráðgjöf frá PMT ráðgjafa eða meðferðaraðila einu sinni í viku og vinna verkefni heima á milli tíma. Þjónustan við þennan hóp er umtalsvert minni en þegar um meðferð er að ræða en bandarískar rannsóknir sýna góðan árangur af slíkri fræðslu fyrir þennan hóp foreldra. Dæmi um þátttakendur á PMT foreldranámskeiðum eru foreldrar eldri barna í leikskóla og yngri barna í grunnskóla.
Kennt verður þriðjudagana:
3. maí
10. maí
17. maí
24. maí
31. maí
7. júní
14. júní
21. júní
frá klukkan 15:00-17:30
Nánari upplýsingar og skráning í síma 4700-705 og á netfangið dagbjort@egilsstadir.is
Eins og allir vita er samvinna foreldra mikilvæg og því er lögð áhersla á að báðir foreldrar mæti. Verð á námskeiðið er kr. 5.000.- fyrir fjölskyldu.
Lágmarksfjöldi þátttakenda á námskeiðinu er foreldrar 6 barna.
Nánar um PMT: Aðferðin er fyrir foreldra og aðra sem koma að uppeldi barna og unglinga. PMT stuðlar að góðri aðlögun barna og er því afar mikilvæg aðferð ef börn sýna hegðunarfrávik. PMT er þróað af Dr. Gerald Patterson, Dr. Marion Forgatch og samstarfsfólki á rannsóknarstofnuninni Oregon Social Learning Center (OSLC) í Eugene í Oregon í Bandaríkjunum. PMT byggir á sterkum grunni rannsókna sem sýna að aðferðin dregur verulega úr hegðunarerfiðleikum barna og unglinga og skilar mestum árangri ef unnt er að grípa snemma inn í og vinna með vandann á fyrstu stigum.
Meginmarkmið námskeiðanna er að kenna foreldrum að nota styðjandi uppeldisaðferðir. Unnið er með ákveðna grunnþætti til að stuðla að jákvæðri hegðun barnsins og draga úr hegðunarvanda. Í raun er um að ræða ákveðin verkfæri sem eru: Fyrirmæli og jákvæð samskipti við barnið, notkun hvatningar við kennslu nýrrar hegðunar, að setja mörk til að draga úr og stöðva óæskilega hegðun, lausn vanda og uppbyggilegar aðferðir í samskiptum innan fjölskyldu, eftirlit með hegðun barns innan og utan heimilis, tengsl við skólakerfið og stjórn neikvæðra tilfinninga