HULDA er nýflutt úr borginni og upp í sveit. Hún og Halli bróðir hennar eru að kynnast þessu nýja umhverfi þar sem allt er framandi; lyktin er náttúrufýla, grasið stingur og það eru pöddur út um allt, meira að segja könguló!
Í feluleik þeirra systkina, verður Hulda rammvillt og hefur ekki grænan grun um hvernig hún kemst aftur heim. Við sérkennilegan hól sem gefur frá sér undarlegan fnyk og dularfull hljóð hittir hún Steina. Hann er kátur tröllastrákur í skrítnum fötum og segist eiga heima í þessum dularfulla prumpuhól. Hól, sem Steini segir að hafi einu sinni verið pabbi sinn, sem lenti í sólargeisla og varð að steini eftir að hafa borðað rosalega mikinn hundasúrugraut. En hundasúrugrauturinn varð ekki að steini. Ónei, hann ólgar enn svo drynur í hólnum. Og fýlan...maður lifandi!
Leikstjóri Prumpuhólsins er Pétur Eggerz. Leikmynd og búninga hannaði Messíana Tómasdóttir. Tónlistin er eftir Guðna Franzson. Leikarar í Prumpuhólnum eru þau Pétur Eggerz og Anna Brynja Baldursdóttir.