Þá var athygli vakin á að aldrei ætti að henda rusli úti í náttúrinni. Gangan gekk vel og aldeilis var tekið til hendinni og safnað saman rusli sem sjórinn hefur borið með sér og aldan séð um að koma fyrir ofar á sandinum. Eftir tiltektina fóru margir að vaða og leika sér í ísköldum sjónum og gengu nokkrir vel blautir aftur heim á leið. Tókst þessi dagur með ágætum.