Í Vopnafjarðarskóla voru mættir tveir af betri tónlistarmönnum þjóðarinnar í gærmorgun, Sigurður Flosason saxafónleikari og Pétur Grétarsson ásláttar- og tölvuhljómborðsleikari, til að skemmta ungum áheyrendum og eldri með leik sínum og sögum. Og sögumenn eru þeir. Dagskráin nefnist "Raddir þjóðar" og þegar saman fer snilldartónlistarfluningur og magnaðar frásagnir getur dagskráin ekki orðið annað en skemmtileg. Má segja að vegist á léttleiki og drungi, sást það glögglega á ungum skaranum þegar ástæða var til að hlægja dátt eða hnipra sig saman.
Um dagskrána er skrifað:
Í þessari dagskrá, sem nefnist "Raddir þjóðar" má segja að tónlistararfur íslensku þjóðarinnar sé tekinn til skoðunar á nýstárlegan hátt. 
Börnin fá að heyra gamlar söngupptökur sem varðveittar eru á Stofnun Árna Magnússonar og Þjóðminjasafni Íslands, leiknar af geisladiski og tölvu samhliða hljóðfæraleik, söng og töluðu máli tónlistarmannanna. Gömlu og nýju er blandað saman á afar áhugaverðan máta svo úr verður hljóðheimur sem á fáa sinn líka. En húmorinn er ekki langt undan og það vekur jafnan mikla kátinu þegar börnunum er kennd listin að "dúlla" enda er kennarinn hinn eini sanni Gvendur dúllari sjálfur!
Margt mun því koma skemmtilega á óvart meðan á dagskránni stendur.
Dagskráin vakti mikla athygli þegar hún var frumflutt á Listahátíð í Reykjavík árið 2002 og voru tónlistarmennirnir, þeir Sigurður Flosason og Pétur Grétarsson m. a. tilnefndir til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs í kjölfarið.
Gekk ofangreint fullkomlega eftir en dagskráin á fullt erindi til breiðari hóps þó fátt sé ánægjulegra en einmitt að skemmta góðum hópi ungmenna og barna. Og það þótti þeim félögum líka og sögðu Vopnfirsk börn sérlega góða áhorf- og áheyrendur.