Þegar er hafið markvisst starf sem miðar að því að mun betra samstarf verði milli foreldra og þeir eigi auðvelt með að tala saman um samskipti barna þeirra.
Að foreldri barns sem verður fyrir útilokun eða öðru einelti eigi auðvelt með að tala við foreldra geranda.
Að allir foreldrar ætli að vinna gegn einelti og foreldrar gerenda beri ábyrgð á framkomu þeirra barns.
Með góðum vilja okkar allra í skólasamfélaginu getum við náð árangri.
Sameinumst í baráttunni gegn einelti í skólasamfélaginu.