Dagur íslenskrar tungu

15.11 2011 - Þriðjudagur

Við í 2.bekk lásum ljóðið ,,íslensk ferðalög“ eftir Ingunni Snædal. Ég sagði þeim lítillega frá höfundi ljóðsins og ræddum við síðan um innihald þess, en ljóðið væri hægt að túlka sem hvatning til fólks um að hætta að versla óhollustu í söluskálum á ferð sinnu um landiðð. Þessu verkefni lukum við síðan með því að teikna mynd af drauma söluskálanum okkar. Eftir hádegi kom vinabekkurinn okkar, 8.bekkur, í heimsókn og lásu þau fyrir okkur ævintýri og við spjölluðum um það hvað við getum gert saman sem vinabekkur í vetur.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir