Heilsueflandi skóli
Vopnafjarðarskóli er þátttakandi í verkefninu heilsueflandi grunnskólar. Landlæknisembættið heldur utan um verkefnið en það hófst hér vorið 2011.
Af hverju þarf heilsueflingu í skólann okkar?
Í aðalnámskrár grunnskóla er gengið út frá sex grunnþáttum og er heilbrigði og velferð einn af þeim þáttum.
Heilsufar og menntun eru nátengd fyrirbæri. Heilsa nemenda ræður miklu hvernig nemendum gengur í námi. Skólinn er því kjörinn vettvangur til að hvetja til heilsueflingar og heilbrigðra lifnaðarhátta meðal barna á skólaaldri. Á þessu skeiði ævinnar læra þau um holla lífshætti, öðlast margvíslega þekkingu og temja sér lifnaðarhætti sem hefur áhrif síðar á ævinni .
Lengi býr að fyrstu gerð.
Stýrihópur
Í stýrihópnum eru aðilar úr öllu skólasamfélaginu og hann skipa:
Debóra Dögg Jóhannsdóttir nemi í 10. bekk
Hrafnhildur Ævarsdóttir foreldri
Bjarney Guðrún Jónsdóttir íþróttakennari
Svava Birna Stefánsdóttir umsjónarkennari 8. b
Sigríður Elva Konráðsdóttir aðstoðarskólastjóri
Veturinn 2011-2012 verður áhersla á:
Hreyfingu, öryggi og samstarf við heimili.