Innkaupalistar 2011-2012
Innkaupalisti 1. – 3. bekkjar
Eftirtalda hluti þurfa nemendur að eiga og nota í skólanum í vetur.
- Mappa 2-4 gata ( sem geymd verður í stofunni okkar)
- Milliblöð
- 2 blýantar ( mælt með grönnum þríhyrndum með bólum)
- Trélitir
- Strokleður
- Dósayddari
- Reglustika
- Lítil skæri
- Límstifti
- Sögubókin mín (lítil fyrir 1.bekk en stóra fyrir 2. og 3. bekk).
- 1 teygjumappa
- Ódýran og einfaldan vasareikni
- Tvær A5 stílabækur
- Ein reiknisbók með stórum rúðum
- Skriftabók (3. bekkur)
Um að gera er að nýta þau gögn sem hægt er á milli ára. Því er gott að kíkja á það sem nemendur komu með heim í vor.
Vinsamlega merkið öll gögn vel og vandlega.
Innkaupalisti 4.–7. bekkjar
Munið að athuga hvað er til síðan í fyrra.
Nemendur eru beðnir að koma með eftirfarandi í skólann:
• Vasareikni, gráðuboga, límstifti, liti, strokleður, yddara (lokaðan), reglustiku, skæri, penna, blýanta eða skrúfblýant og blý
• 1 stóra stílabók A4 – (gormabók fyrir 6. og 7. bekk)
• 1 glósubók og orðabók fyrir ensku (nema 7. bekkur fyrir dönsku líka).
• 1 stór reikningsbók A4 (gormabók fyrir 6. og 7. bekkur)
• 1 plastmöppu með teygjur á hornum (undir heimavinnu)
• Tveggja gata möppu (A4) með hörðum spjöldum og milliblöð
• Minniskubb (þarf ekki að vera stór)
• 1 plastmöppu með glærri forsíðu
• 2 plastvasa
• Innanhús íþróttaskó, íþróttaföt, sundföt og handklæði
Innkaupalisti 8.-10. bekkjar
Nemendur eru beðnir að koma með eftirfarandi í skólann:
• Vasareikni, gráðuboga og hringfara, límstifti, liti, strokleður, yddara, reglustiku, skæri, penna, blýanta eða skrúfblýant og blý
• 3 stórar stílabækur (A4- 1 gormabók og tvær venjulegar)
• 1 glósubók
• 1 stór reikningsbók (A4)
• 2 plastmöppur með teygjur á hornum (undir heimavinnu)
• Tveggja eða fjögurra gata möppu (A4) með hörðum spjöldum og milliblöðum
• 5 plastvasar
• Íþróttaskór (innanhússkór)
• Æskilegt er að eiga orðabækur fyrir dönsku og ensku kennslu, þessar bækur nýtast áfram
• Æskilegt er að nemendur hafi aðgang að minnislykli (USB) fyrir ýmiss konar verkefnavinnu í tölvu
Vinsamlegast athugið að ekki er þörf á að kaupa allt sem er á listanum og tilvalið að nota það sem þið eigið. Ekki voru allar bækur notaðar á síðasta skólaári.
Við hvetjum nemendur til að ganga vel um bækur og gögn; hafa á þeim góða reglu, það mun skila sér í betri árangri og betri líðan.