Samkvæmt grunnskólalögum eiga allir nemendur rétt á kennslu við hæfi.
Í reglugerð um sérkennslu segir ennfremur:
„Grunnskólinn skal laga starf sitt að þroska og getu allra nemenda sinna,
þannig að hver nemandi fái kennslu við hæfi. Því ber að skipuleggja
skólastarfið í heild út frá þörfum allra nemenda og skapa námsumhverfi
sem hæfir hverjum og einum.“( 2. gr.)
Til að framfylgja þessari stefnu betur en mögulegt er í bekkjarkennslu er
gefinn kostur á sér og stuðningskennslu. Stuðningsaðili og/eða sérkennari fer inn
í bekk til nemandans og tekur nemanda úr kennslustund, svo fremi að það þjóni nemandanum best.
Sérkennsla getur verið til lengri og skemmri tíma allt eftir þörfum hvers og eins.
Sérkennsla er miðuð við einstakling en ekki heildina, á það jafnt við um kennsluaðferðir sem notkun námsefnis.
Vopnafjarðarskóli hefur gert skimunaráætlun, þ.e.greiningu allra nemenda.
Við greiningu einstakra
nemenda er tekið mið af útkomu þessara greininga.
| Bekkur | Prófgögn
| Tími
|
1. bekkur
| Hreyfiþroskapróf MOT 4 – 6 ára Lestrarpróf/hraðlestrarpróf Læsi – lestrarskimun | Haust Miðsvetrar, vor Nóv. og feb. |
2. bekkur
| Lestrarpróf/hraðlestrarpróf Læsi – lestrarskimun | Miðsvetrar, vor sept. nóv. og feb. |
3. bekkur
| Hraðlestrarpróf/framsagnarpróf Talnalykill LH 60 (lesskilningur/hraði) | Miðsvetrar, vor Okt. Vor |
4. bekkur
| Samræmd próf í íslensku og stafsetningu Hraðlestrarpróf/framsagnarpróf LH 40 (lesskilningur/hraði) | Okt. Miðsvetrar, vor Vor |
5. bekkur
| Hraðlestrarpróf/framsagnarpróf | Miðsvetrar,vor |
6. bekkur
| Hraðlestrarpróf/framsagnarpróf | Miðsvetrar,vor |
7. bekkur
| Samræmd próf í íslensku og stafsetningu Hraðlestrarpróf/framsagnarpróf | Okt. Miðsvetrar, vor |
9. bekkur
| GRP 14, (Greinandi ritmálspróf)
| Haust
|