Heilsugæsla


Skólahjúkrunarfræðingur Vopnafjarðarskóla er Emma Tryggvadóttir. Hún sinnir heilsugæslu í skólanum á vegum Heilbrigðisstofnunar Austurlands.

Viðtalstími í skólanum er alla þriðjudaga kl. 8:15-11:00
Sími: 470 3257
Netfang: emma(hjá)hsa.is


Hlutverk skólahjúkrunarfræðings:

  • veitir almenna heilsugæslu
  • eftirlit með heilsufari
  • heilbrigðishvatning
  • forvarnarstarfsemi

Eftirlit með nemendum
Minni áhersla verður lögð á mælingar á líkamsþyngd og -hæð en áður og heldur reynt að verja meiri tíma í fræðslu. Nauðsynlegt er að fá góðar upplýsingar um heilsufar barnanna þannig að hægt sé að sinna þeim sem best sem eiga við vandamál að stríða

Foreldrar eru hvattir til að hafa samband við skólahjúkrunarfræðing ef þeir vilja að sérstaklega sé fylgst með börnum þeirra eða til að koma einhverjum upplýsingum á framfæri.

Hollusta
Börn sem eru að vaxa og þroskast þurfa öðrum fremur holla og góða fæðu. Á morgnana hafa þau að jafnaði ekki borðað mat í 12-14 klukkustundir og eru farin að ganga á orkuforða sinn. Því er nauðsynlegt að fá góðan morgunmat svo næg orka verði til að takast á við verkefni dagsins. Einnig eru nemendur hvattir til að hafa með sér hollt og gott nesti.

Flúorskolun

Síðast liðna vetur hefur einungis verið flúorskolað í 1., 7. og 10. bekk. Skolað er á tveggja vikna fresti og er þessi háttur hafður á samkvæmt tilmælum frá landlækni.

Skólaskoðun
Almenn skoðun hjúkrunarfræðings er þannig að í 1., 2., 4., 7., og 10. bekk er framkvæmt sjónpróf og mæld hæð og þyngd. Í fyrsta bekk er einnig mæld heyrn. Litaskyn drengja í 7. bekk er athugað og sá bekkur fær einnig bólusetningu. Í 9. bekk er heyrnarmæling, læknisskoðun og bólusetning. Ekki er lengur mælt mótefni gegn rauðum hundum hjá stúlkum í 7. bekk.


Heilsuvefurinn 6H





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir