Lengd viðvera
Lengd viðvera er í boði fyrir nemendur 1.-4. bekkjar og alla nemendur úr sveitinni eftir skóla til kl. 14 á mánudögum en til kl. 15 aðra daga. Skólaliðar hafa umsjón með nemendum á skólalóðinni.
Gæslunemendur teljast þeir nemendur 1.-4. bekkjar sem þurfa að bíða eftir skólaakstri eða eru skráðir í gæslu.
Við viljum að samskipti nemenda og skólaliða séu sem best þar sem grunngildi eins og virðing, kurteisi og tillitssemi eru höfð að leiðarljósi, . Innan þessara gilda fellur hlýðni gæslunemenda og þar sem stuðst er við grundvallarviðmið. Gæslan er bæði innan húss og utan og nemendur fara ekki út af skólalóðinni á gæslutíma nema í samráði foreldra/forráðamanna og skólaliða.
Séu börn tekin úr gæslu á gæslutíma skal láta skólaliða vita.