Nemendaverndarráð
Nemendaverndarráð skólans fjallar um velferð nemenda. Í nemendaverndarráði sitja, Emma Tryggvadóttir, skólahjúkrunarfræðingur, Aðalbjörn Björnsson, skólastjóri, Sigríður Elva Konráðsdóttir, aðstoðarskólastjóri og félagsráðgjafi frá Félagsþjónustu Fljótsdalshéraðs, Hlín Stefánsdóttir. Þá er leitað til sérfræðinga eftir mati ráðsins, t.d. heilsugæslulæknis, sálfræðings Skólaskrifstofu Austurlands og ýmissa annarra. Umsjónarkennarar eru einnig kallaðir til fundar þegar þess gerist þörf.