Félagslíf og ferðalög
Starfsemin í félagsmiðstöðinni Drekanum og félagslífið í skólanum tengjast mikið. Félagsstarf unglinga er meira og minna í föstum skorðum ár frá ári þó að einhverjar breytingar geti orðið. Starfandi kennari vinnur með nemendaráði að félagsstörfum nemenda í nánu samstarfi við skólann. Félagsstarf fyrir yngstu nemendurna er auglýst sérstaklega og er það í beinum tengslum við skólastarfið.
Heimkeyrsla er í sveitina í tengslum við félagsstörf.
Ferðalög
Stuttar ferðir eins og haustferðir og vorferðir eru farnar árlega.
Haustferðir eru farnar með ákveðið markmið í huga. Það er að nemendur upplifi og kynnist betur nánasta umhverfi sínu og fái hreyfingu með því að fara í göngu- og skoðunarferðir í byggðarlaginu. Vorferðir eru aðallega innansveitar og stundum er gist. Einnig er farið í stuttar ferðir út fyrir byggðarlagið.
8.-10. bekkur fer á Fjarðaball sem er dansleikur fyrir grunnskólanemendur á Austurlandi.
Þá er einnig farið á samskólamót skólanna frá Vopnafirði til Kópaskers. 10. bekkur hefur yfirleitt farið til útlanda að vori.
Árshátíðin
Árshátíð Vopnafjarðarskóla er haldin í marsmánuði ár hvert. Þá skemmta nemendur áhorfendum á sviði á tveimur sýningum, dagskemmtun og kvöldskemmtun. Mikill metnaður er lagður í árshátíðina og almenningur sækir hana ávallt vel. Með sanni má segja að árshátíðin sé fjölmennasta menningarsamkoman á Vopnafirði.
Allir bekkir undirbúa skemmtiatriði auk þess sem elstu nemendurnir setja á svið lengra stykki eða hluta úr leikhúsverki. Kaffisala með veisluhlaðborði og samlokur eru í boði í hléi. Þá er haldið happdrætti og vinningsmiðar tilkynntir í lok kvöldskemmtunar. Meginmarkmið árshátíðarinnar er að þjálfa nemendur í framkomu og hegðun á hátíðum sem þessum og að allir nemendur skólans fái reynslu af undirbúningi og framkvæmd slíkrar menningarsamkomu.
Selt er inn á hátíðina og er innkoman ætluð til ferðalaga nemenda, einkum til að styrkja skólaferðalag nemenda 10. bekkjar og stundum 9. bekkjar.
Skólinn stendur undir öllum kostnaði við hátíðina; vinnulaunum, húsaleigu og öðru. Þá hefur skólinn notið góðvildar fyrirtækja í byggðarlaginu sem hafa styrkt hátíðina með fjárframlagi og happdrættisvinningum.
Aðrir viðburðir
Litlu jólin eru haldin síðasta skóladag fyrir jól. Nemendur mæta í sínu fínasta pússi og hver bekkur fer í stofu með sínum kennara þar sem jólaguðspjallið er lesið og jólasaga. Á eftir er sameiginleg skemmtun þar sem gengið er í kringum jólatréð og stutt skemmtun haldin á sviði.
Þorrablót skólans er haldið árlega með sameiginlegu borðhaldi og skemmtiatriðum fyrir 7.-10. bekk og starfsmenn skólans.
Bekkjarkvöld er haldið hjá öllum bekkjum einu sinni á hvorri önn.