Vopnafjarðarskóli
Lónabraut 12
690 Vopnafjörður
Sími: 470 3250
Fax: 470 3259
Skólinn er opinn alla virka daga kl 7:50-15:00
Skólastjóri Aðalbjörn Björnsson
adalbjorn(hjá)vopnaskoli.is
AðstoðarskólastjóriSigríður Elva Konráðsdóttir
sirra(hjá)vopnaskoli.is
Vopnafjarðarskóli er grunnskóli frá 1. til 10. bekk fyrir nemendur í öllu sveitarfélaginu þar sem heimaakstur er fyrir börn í úr sveitinni. Í skólanum eru um 90 börn veturinn 2010-2011 og starfsmenn á þriðja tuginn. Flestir voru nemendur 170 þegar íbúar sveitarfélagsins voru sem flestir.
Skólinn er einsetinn og hefur verið það síðan 1994; fyrstu árin við fremur erfiðar aðstæður en með nýrri viðbyggingu og breytingum á eldra húsnæði er öll aðstaða nú til fyrirmyndar. Tónlistarskólinn er einnig til húsa í nýbyggingunni, auk bókasafns skólans og sveitarfélagsins.
Í mötuneyti Vopnafjarðarskóla er boðið upp á mat í hádeginu fyrir alla nemendur og starfsfólk þeirra stofnana sem starfa í húsinu, auk leikskólans Brekkubæjar. Mötuneytið hefur frá árinu 2005 unnið samkvæmt fyrirskrift Lýðheilsustöðvar.
Allstór hópur fólks hefur í gegnum árin nýtt sér fjarnámsaðstöðu skólans til náms við Háskólann á Akureyri og víðar.