Húsnæði og kennsluskipulag


Húsnæði Vopnafjarðarskóla telur alls 2067,7 m2 (brúttó). Eldri bygging, frá árinu 1967, er 844 m2 og nýrri byggingin, frá árinu 2000, er 1223,7 m2. Salur íþróttahússins er 26x15 m og Sundlaugin Selárdal er 12,5x6 m.

Heimastofur fyrir 1.-5. bekk eru á neðstu hæð en heimastofur 6.-10. bekkjar á efstu hæð. Á miðhæð eru sérgreinastofur utan myndmennta- og tölvustofa sem eru á efstu hæðinni. Auk þess eru Tónlistarskóli Vopnafjarðar, Bókasafn Vopnafjarðar og mötuneyti skólans staðsett á miðhæðinni.

92 nemendur eru í Vopnafjarðarskóla við skólasetningu haustið 2010, þar af 16 í 1. bekk sem er fjölmennasti árgangurinn.

Kennslustundafjöldi í viku hverri er sem hér segir: 1.-4 .bekkur: 30 kennslustundir 5.-7. bekkur: 35 kennslustundir 8.-10. bekkur: 37 kennslustundir Þar af eru fimm valstundir í 9.og 10. bekk.

Samkennsla er að einhverju leyti í öllum bekkjum en þó minnst í 8. bekk. 1. – 3. bekkur og 4. og 5. bekkur eru í samkennslu í öllum greinum nema verkgreinum. 6. og 7. bekkur eru í samkennslu 15 – 20 tíma á viku. 8. og 9. bekkur eru alfarið í samkennslu.

Í leikfimi eru 8. til 10. bekkur saman, kynjaskipt einu sinni í viku. Sundkennsla er haust og vor í Selárdalslaug í 12 km fjarlægð og er hún þannig skipulögð að kennt er miðað við íþróttatíma og er ætluð 1 kennslustund í ferð til og frá Sundlaug. Þar af leiðir að nemendur missa af öðrum tímum í skólanum sem þessu nemur.

 Sundkennsla skólárið 2008-2009 er tvo daga vikunnar fram eftir hausti hjá 4.-10. bekk og fer eftir veðri hversu lengi því verður haldið úti. Ætlunin er að byrja síðan aftur á miðjum vetri og síðan með yngstu nemendur að vori. Skólastarf hefst kl 8:10.

 

Á mánudögum, þriðjudögum og föstudögum er kennslu lokið kl 13:50 en aðra daga lýkur kennslu kl.15:20. Nemendur ganga inn um aðalinngang nema nemendur í 1.-3. bekk sem ganga inn á neðstu hæð.

 

Skólahúsnæðið er opnað kl. 07:50 og gæsla nemenda er frá þeim tíma og fyrir 1.-4. bekk til kl.15:00 alla daga nema mánudaga til kl.14:00. Skólanum er lokað kl. 16:00 nema á mánudögum kl. 14:00.

 

Í skólaakstri eru 12 nemendur og skiptist skólaaksturinn í 3 leiðir. Fjallasíðan; Öxl, Grænilækur, Svínabakkar, Hrísar. Hofsárdalur; Vatnsdalsgerði, Ásbrandsstaðir,Hof, Bustarfell. Vesturárdalur; Torfastaðir II, Ytri-Nýpur II.

 

Heimanakstur er að morgni og heimkeyrsla kl 15:00 nema mánudaga kl 14:00. Þá er heimkeyrsla vegna félagsstarfa kl. 16:00 eða 17:00 og tvisvar á kvöldin eftir þörfum.

 

Á mánudögum eru oft fundahöld hjá starfsfólki frá kl.14:20-kl.16:00 og því er erfitt að ná sambandi við skólann á þeim tíma.



Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir