Mat á skólastarfi


Mat á skólastarfi byggir á tvenns konar rökum. Annars vegar er hvatinn utanaðkomandi, þ.e. lagaboð stjórnvalda og hins vegar kemur hvatinn innan frá þ.e. löngunin til að byggja upp betra, markvissara og skilvirkara skólastarf og stuðla að ánægju og vellíðan þeirra sem að því koma. Skólastarf þarf að vera í sífelldri endurskoðun og nauðsynlegt að allt skólasamfélagið sé þátttakandi í því. Óformlegt sjálfsmat meðal starfsfólks og nemenda er sífellt í gangi með formlegum sem óformlegum hætti. Þá eru góð og tíð samskipti við foreldra í viðtölum og með ýmsum hætti nauðsynleg til að bæta skólastarfið. Formlegt sjálfsmat þetta skólaár verður með ýmsum hætti Skipaður hefur verið matshópur fyrir þetta skólaár sem vinnur að sjálfsmati skólans á þessu skólaári auk þess að ljúka vinnu að úrbótum vegna sjálfsmats síðasta árs. Nemendur meta sjálfan sig í samstarfi við foreldra með því að svara fullyrðingum um framkomu, hegðun og líðan í skólanum. Foreldrar svara spurningakönnun um skólastarfið á foreldradaginn, starfsfólk svarar könnun um skólastarfið á haustdögum og líðan þeirra í starfi. Þá er könnun vegna Olweusar verkefnisins gegn einelti lögð fyrir nemendur í nóvember. Í upphafi þessa skólaárs hóf Vopnafjarðarskóli þátttöku í Skólapúlsinum en Skólapúlsinn er þróunarverkefni sem Kristján K. Stefánsson sérfræðingur í kennslufræði og Almar M. Halldórsson sérfræðingur í rannsóknaraðferðum í félagsvísindum vinna að innan Menntavísindasviðs Háskóla Íslands. Skólapúlsinn er vefkerfi sem miðar að því að veita skólastjórnendum stöðugan aðgang að nýjum upplýsingum sem aflað er mánaðarlega um þætti sem tengjast virkni nemenda og líðan þeirra í skólanum og um skóla- og bekkjaranda. Til að árangur af sjálfsmatinu verði sem bestur eru niðurstöður teknar saman á vorönn og flokkað eftir styrkleikum og veikleikum. Út frá þeim niðurstöðum er unnin svokölluð úrbótaáætlun sem eins og nafnið ber með sér á að stuðla að því að laga það sem aflaga hefur þótt fara samkvæmt niðurstöðum sjálfsmatsins.

Matsskýrsla 2009-2010.pdf




Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir