Fundur nr. 6
Kjörtímabilið 2026—2030
Kjörtímabilið 2026—2030
Skrifstofa Vopnafjarðarhrepps kl. 14:00
Björn Ingimarsson ritaði fundargerð
Björn Ingimarsson
Starfandi sveitarstjóriÍris Edda Jónsdóttir
NefndarmaðurStefán Guðnason
OddvitiSandra Konráðsdóttir
NefndarmaðurJivko Dinev
NefndarmaðurGauti Halldórsson
NefndarmaðurSkúli Þórðarson
NefndarmaðurEyrún Guðbergsdóttir
NefndarmaðurFyrir liggur minnisblað þar sem gerð er grein fyrir verkefninu myndagrúsk og áform eldriborgarafélags Vopnafjarðar varðandi verkefnið.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir að veita eldriborgarafélagi Vopnafjarðarhrepps stuðning við framgang verkefnisins myndagrúsks og felur starfandi sveitarstjóra að ganga frá samningi við eldriborgarafélagið á grundvelli fyrirliggjandi gagna.
Til máls tóku starfandi sveitarstjóri, SK og SG.
Samþykkt samhljóða.
Fyrir liggja 193. og 194. Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Austurlands.
Lagt fram til kynningar.
Fyrir liggur ársskýrsla Haust fyrir árið 2025.
Lagt fram til kynningar.
Fyrir liggur bókun umhverfis- og framkvæmdaráðs varðandi afgreiðslu leyfis til að kanna jarðveg á lóðinni Einarsstaðir 2.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Vopnarfjarðarhrepps samþykkir tillögu umhverfis- og framkvæmdaráðs um að, með vísan til reglugerðar nr. 112/2012, er samþykkt að veita umsækjendum leyfi til að kanna jarðveg á framkvæmdasvæði þó að byggingarheimild hafi ekki verið veitt. Við veitingu leyfis skal liggja fyrir rannsóknaráætlun sem skilgreinir tilgang, aðferðir, umfang rasks, ábyrgð og frágang.
Til máls tóku starfandi sveitarstjóri og SÞ.
Samþykkt samhljóða.
Starfandi sveitarstjóri fór yfir stöðu mála við vinnu fjárhagsáætlunar fyrir árin 2027-2030 og næstu skref.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Með vísan til ályktunar Landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi það að sveitarfélögin sýni ábyrgð gagnvart stöðu efnahagsmála og taki virkan þátt í að bæta stöðuna samþykkir sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps að stuðla að lækkun verðbólgu og vaxta með því að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5% marka á árinu 2027. Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps tekur einnig undir það að nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi og að ríkisvaldið og stofnanir þess takmarki með sama hætti hækkanir á gjaldskrám og álögum sem hafa bein áhrif á verðlagsþróun og rekstur heimila í landinu.
Starfandi sveitarstjóra falið að sjá til þess að við vinnu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027 verði þetta viðmið virt.
Til máls tóku starfandi sveitarstjóri, GH, SK og SG.
Samþykkt samhljóða.
Fyrir liggur til umsagnar frumvarp til laga um breytingar á lögum um Byggðarstofnun, nr. 106/1999 (lagfæringar).
Lagt fram til kynningar.
Fyrir liggur erindi frá samtökum um kvennaathvarf þar sem óskað er eftir styrkveitingu frá Vopnafjarðarhreppi.
Eftifarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir að fela starfandi sveitarstjóra að taka málið til skoðunar samhliða vinnu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027.
Til máls tóku starfandi sveitarstjóri, EG, SÞ, ÍEJ og SG.
Samþykkt samhljóða.
Fyrir liggur beiðni um framlag til starfsemis Stígamóta árið 2027.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir að fela starfandi sveitarstjóra að taka málið til skoðunar samhliða vinnu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027.
Samþykkt samhljóða.
Fyrir liggur bókun Hreppsráðs varðandi framlengingu leigusamnings Þorbrandsstaða.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Vopnanfjarðarhrepps samþykkir tillögu hreppsráðs varðandi það að umrædd eign í Þorbrandsstöðum verði auglýst til leigu er núverandi leigusamningur rennur út um næstkomandi áramót. Starfandi sveitarstjóra falið koma þessu í framkvæmd.
Til máls tóku ÍEJ, SK, SÞ, SG og starfandi sveitarstjóri.
Samþykkt samhljóða.
Farið yfir stöðu mála varðandi Finnafjarðarverkefnið og næstu skref.
Til máls tóku SG, EG, SK, ÍEJ, GH, SÞ og starfandi sveitarstjóri.
Lagt fram til kynningar.
Fyrir liggur erindi frá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga þar sem fram kemur að við yfirferð ársreiknings vegna ársins 2025 liggi fyrir að sveitarfélagið uppfylli reglur varðandi skuldaviðmið en ekki jafnvægisreglu og er lögð á það áhersla að sveitarfélagið hafi þetta til hliðsjónar við áætlanagerð sveitarfélagsins og móti áætlun um aðgerðir sem tryggi að viðmið jafnvægisreglu verði uppfyllt á ný.
Til máls tók starfandi sveitarstjóri.
Lagt fram til kynningar.
a) Fjölskylduráð fundargerð 061026
Lagt fram til staðfestingar
b) Ungmennaráð fundagerð 051026
Lagt fram til staðfestingar
c) Fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs 141026
Lagt fram til staðfestingar
d) Fundargerð menningar- og atvinnumálanefndar 141026
Lagt fram til staðfestingar
e) Fundargerð hreppsráðs 011026
Lagt fram til staðfestingar
f) Fundargerð 1003 fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lagt fram til kynningar