Fjöl­skylduráð

Fundur nr. 3

Kjörtímabilið 2026—2030

3. nóvember 2026

Félagsheimilinu Miklagarði kl. 08:15
Þórhildur Sigurðardóttir ritaði fundargerð

Fundur nr. 3 í fjölskylduráði kjörtímabilið 2026 – 2030. Fundur var haldinn þriðjudaginn 3. nóvember 2026 kl. 8:15 í félagsheimilinu Miklagarði.

1. Erindi#1-erindi

  • Gjafa­sjóður Vopna­fjarð­ar­skóla

    ​Fjölskylduráð er jákvætt fyrir því að stofnaður sé gjafasjóður Vopnafjarðarskóla sent áfram til sveitarstjórnar til afgreiðslu. Athuga mætti svipað fyrir leikskólann.

  • Bóka­safn stýri­hópur

    ​Beiðni barst um að stofnaður yrði stýrihóp um bókasafn Vopnafjarðar. Björn Ingimarsson staðgengill sveitarstjóra mætir á fund og gerði grein fyrir að málið væri í vinnslu. 

  • Aðgerðaráætlun farsæld­ar­ráðs 2027-2030

    Nína Hrönn verkefnastjóri farsældarráðs kynnir aðgerðaráætlun farsældarráðs Austurlands. Vangaveltur komu upp varðandi kostnað við aðgerðaráætlunina og hvort hægt væri að virkja foreldra með í aðgerðum og fá þau til að taka þátt í farsæld í samfélaginu.

  • Öldungaráð mætir á fund.

    ​Fundargerð 1. fundar Öldungaráðs kynnt. Rætt um breytingar á erindisbréfi Öldungaráðs. Laga orðalag í erindisbréfi breyta í leiguíbúðir í Sundabúð. 

    Hugmyndir um að stuðla að aukinni hreyfingu og virkni eldri borgara. 

    Hvetja til göngu á göngum efri hæð Sundabúðar. Tillaga að gera könnun á hreyfingu og þátttöku í félagsstarfi  eldri borgara og það sé gert 1 sinni á ári. Starfsmanni fjölskylduráðs falið að vinna málið áfram. Umræða um gerð bæklings fyrir eldri borgara, farið verður í þá vinnu á næstu vikum.

    Samþykkt samhljóða.


Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 10:17.