Hreppsráð

Fundur nr. 3

Kjörtímabilið 2026—2030

5. nóvember 2026

Skrifstofa Vopnafjarðarhrepps kl. 00:00
Björn Ingimarsson ritaði fundargerð

Fundur nr. 3. í hreppsráði Vopnafjarðarhrepps, kjörtímabilið 2026-2030 haldinn miðvikudaginn 4. nóvember 2026 kl. 11:00 á skrifstofu sveitarfélagsins.

1. Erindi#1-erindi

  • Fjár­hags­áætlun 2027

    ​

    Katrín Pálsdóttir, starfandi fjármálastjóri, tengdist fundinum undir þessum lið um fjarfundarbúnað og fór, ásamt staðgengli sveitarstjóra, yfir stöðu mála við fjárhagsáætlunargerð fyrir árin 2027 og 2028-2030.
    Lagt fram til kynningar.


  • Fund­ar­gerð aðal­fundar Samtaka sveit­ar­fé­laga á köldum svæðum, 7. október 2026

    ​Lagt fram til kynningar.

  • Umsagn­ar­beiðni fyrir Ölduna á Vopna­firði

    ​Fyrir liggur umsagnarbeiðni ásamt umsókn og teikningum af húsnæði vegna rekstrarleyfisumsóknar fyrir veitingarstaðinn Ölduna á Vopnafirði auk jákvæðrar umsagnar skipulags- og byggingarfulltrúa Vopnafjarðarhrepps.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Hreppsráð Vopnafjarðarhrepps gerir ekki athugasemd við að veitt verði veitingaleyfi á grundvelli fyrirliggjandi umsagnarbeiðni fyrir veitingastaðinn Ölduna á Vopnafirði.
    Samþykkt samhljóða.


  • Aðgerðaráætlun farsæld­ar­ráðs 2027-2030

    ​

    Fyrir liggur aðgerðaráætlun Farsældarráðs Austurlands 2027-2030 og ósk um umfjöllun í fagráðum sveitarfélagsins og sveitarstjórn.
    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Hreppsráð samþykkir að beina erindinu til afgreiðslu í sveitarstjórn þegar að umfjöllun fjölskylduráðs liggur fyrir.
    Samþykkt samhljóða


  • Minn­is­blað um girð­ingar

    ​Fyrir liggur minnisblað frá forstöðumanni þjónustumiðstöðvar þar sem vakin er athygli á illa förnum og/eða ónýtum girðingum í dreifbýli sveitarfélagsins.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Hreppsráð Vopnafjarðarhrepps tekur undir það að mikilvægt er að vekja athygli landeigenda á mikilvægi þess að þeir fjarlægi ónýtar girðingar úr landi viðkomandi. Sveitarstjóra falið að sjá til þess að send verði bréf á landeigendur þar sem lögð er áhersla á að við þessu verði brugðist og að farið verði eftir girðingarlögum.
    Samþykkt samhljóða.


  • Erindi vegna Bust­ar­fells.

    ​

    Fyrir liggur liggur erindi frá framkvæmdastjóra Bustarfells varðandi skipan í stjórn félagsins auk þesss að óskað er eftir viðbótarstyrk frá sveitarfélaginu til að tryggja að rekstur þess standi undir nauðsynlegum skuldbindingum fram yfir áramót.
    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Hreppsráð samþykkir að Íris Edda Jónsdóttir taki sæti í stjórn Bustarfells sem fulltrúi sveitarfélagsins og beinir óskinni um viðbótarstyrk til afgreiðslu á næsta fundi sveitarstjórnar.
    Samþykkt samhljóða


  • Viðmið um sjálf­bæra þróun sveit­ar­fé­laga

    ​

    Fyrir liggur að innviðaráðuneytið hefur birt tillögur um viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Umsagnarfrestur er til og með 13. nóvember nk.
    Lagt fram til kynningar.


  • Breyting á Loftbrú – Ályktun stjórnar SSA.

    ​

    Fyrir liggur ályktun stjórnar SSA varðandi fyrirhuguð áform um breytingar á Loftbrú.
    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Hreppsráð Vopnafjarðarhrepps tekur undir með stjórn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi og mótmælir boðaðri breytingu á fyrirkomulagi Loftbrúarinnar.
    Samþykkt samhljóða


  • Aðal­fundur HAUST 2026

    ​

    Fyrir liggur boðun á aðalfund Heilbrigðiseftirlits Austurlands sem haldinn verður á Teams fimmtudaginn 12. nóvember kl. 14:00.
    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Hreppsráð Vopnafjarðarhrepps samþykkir að Björn Ingimarsson, staðgengill sveitarstjóra, sitji aðalfund HAUST fyrir hönd Vopnafjarðarhrepps og fari með atkvæði sveitarfélagsins.
    Samþykkt samhljóða.


  • Leik­skóli viðmið mætinga á skrán­inga­dögum

    ​Fyrir liggur bókun fjölskylduráðs, dags. 6. október 2026, þar sem samþykkt var breyting á vistunartíma leikskólabarna auk lágmarksviðmiða fyrir opnun leikskólans á skráningardögum. Einnig liggur fyrir erindi frá foreldrum þar sem gerðar eru athugasemdir við ákvörðun fjölskylduráðs og því mótmælt að hún taki gildi með þeim hætti sem kynntur hefur verið foreldrum.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Hreppsráð samþykkir að beina því til fjölskylduráðs að ákvörðun varðandi breytingu á vistunartíma leikskólabarna verði tekin til endurskoðunar með vori er reynsla hefur fengist á áhrifum fyrirliggjandi breytinga.

    Samþykkt samhljóða.


  • Fund­ar­gerðir 99., 100. og 101 funda stjórnar Samtaka sjáv­ar­út­vegs­sveit­ar­fé­laga.

    ​Lagt fram til kynningar.

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 13:05.