Fundur nr. 4
Kjörtímabilið 2026—2030
Kjörtímabilið 2026—2030
Skrifstofa Vopnafjarðarhrepps kl. 08:30
Björn Ingimarsson ritaði fundargerð
Aðalbjörg Ósk Sigmundsdóttir
FormaðurHelga Kristín Tryggvadóttir
NefndarmaðurHólmar Bjarki Wiium Bárðarson
NefndarmaðurSelja Janthong
NefndarmaðurGulmira Kanakova
NefndarmaðurBjörn Ingimarsson
SveitarstjóriInn á fundinn mættu Sara Elísabet Svansdóttir og Selja Janthong sem munu halda utan um helstu viðburði sveitarfélagsins. Farið var yfir það m.a. hvaða viðburði er um að ræða og hvernig sé skynsamlegt að standa að þeim.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Lagt er til að jólaball í Miklagarði verði ekki haldið í ár.
Samþykkt samhljóða.
Farið var yfir drög að verklagi varðandi tímaskráningu og uppgjör viðburða.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Menningar og atvinnumálanefnd samþykkir fyrirliggjandi drög með tilliti til breytinga og beinir þeim til sveitarstjórnar til staðfestingar.
Samþykkt samhljóða.
Fyrir liggur umsókn um styrk úr menningarsjóði Vopnafjarðarhrepps til verkefnis er hefur það markmið að koma upp varanlegri aðstöðu til að koma upp skautasvelli á Vopnafirði. Aðalbjörg Ósk Sigmundsdóttir óskaði eftir að fá að víkja af fundi á meðan erindið fengi umfjöllun og afgreiðslu þar sem hún væri einn umsækjenda og teldi sig því vanhæfa til að koma að afgreiðslu málsins. Vanhæfi var samþykkt og vék Aðalbjörg Ósk af fundi.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Menningar- og atvinnumálanefnd samþykkir að veita umsóttan styrk, kr. 200.000,-, til verkefnis er snýst um að koma upp varanlegri aðstöðu fyrir skautasvell á Vopnafirði. Starfandi sveitarstjóra falið að sjá til þess að styrkur verði greiddur til umsækjenda.
Samþykkt samhljóða.
Fyrir liggur erindi frá Tessa Rivarola varðandi sýningu og vinnustofu fyrir börn á Vopnafirði í mars og apríl 2027 og að verkefni yrði auglýst á heimasíðu sveitarfélagsins auk þess að sveitarfélagið útvegaði aðstöðu.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Menningar- og atvinnumálanefnd samþykkir beiðni Tessa Rivarola og felur starfandi sveitarstjóra að láta svara erindinu og leggja mat á vænlega aðstöðu fyrir verkefnið.
Samþykkt samhljóða.
Fyrir liggur erindi frá starfsmanni sýslumanns um að umsóknir vegna áramótabrennu þurfi að berast eigi síðar en 4. desember nk. Jafnframt liggur fyrir að eigendur Leiðarhafnar hafa komið á framfæri þeirri hugmynd að halda áramótabrennu í þeirra landi þetta árið.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Menningar- og atvinnumálanefnd lýst vel á þá hugmynd að áramótabrennan verði haldin í landi Leiðarhafnar þetta árið, með fyrirvara um að aðkoma og bílastæði verði ásættanleg, og verði forstöðumanni þjónustumiðstöðvar, í samráði við sveitarstjóra og umsjónaraðila flugeldarsýningar, falið að koma að verkefninu fyrir hönd sveitarfélagsins auk þess að sækja um brennileyfi.
Samþykkt samhljóða.
Fyrir liggur erindi þar sem lýst er áhyggjum af ástandi hákarlahjalla í sveitarfélaginu auk menningarlegs hlutverks þeirra.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Menningar- og atvinnumálanefnd samþykkir að fela starfandi sveitarstjóra að sjá til þess að famkomnum athugasemdum verði komið á framfæri við eigendur umræddra hákarlahjalla.
Samþykkt samhljóða.
Fyrir liggur til afgreiðslu erindisbréf spretthóps um atvinnumál á Vopnafirði.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Menningar- og atvinnumálanefnd samþykkir fyrirliggjandi erindisbréf spretthóps um atvinnumál á Vopnafirði.
Samþykkt samhljóða.
Fyrir liggur fundargerð fundar nr. 1 í spretthópi um atvinnumál sem haldinn var miðvikudaginn 28. október kl. 11:00 á skrifstofu sveitarfélagsins.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Menningar- og atvinnumálanefnd samþykkir tillögu spretthópsins um að íbúafundur verði haldinn á Vopnafirði miðvikudaginn 9. desember nk. og að framkvæmdastjóri Austurbrúar verði fengin til að taka þátt og gera grein fyrir þeim verkefnum sem eru í farvatninu auk þess að stefnt verði að því að fulltrúi byggðastofnunar verði einnig með kynningu á mögulegu samstarfsverkefni Byggðastofnunar og sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða.
a. Samningar um styrki um háskóla-, rannsóknar- og nýsköpunarstarfsemi á Vopnafirði og rekstrarstyrki vegna vinnustaðaklasa.
Farið yfir samninga, annars vegar, Austurbrúar og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis um háskóla-, rannsókna- og nýsköpunarstarfsemi á Vopnafirði og, hins vegar, samninga Byggðastofnunar og Vopnafjarðarhrepps um rekstrarstyrki vegna vinnustaðaklasa í Kaupvangi.
b. Mannamót
Opnað hefur verið fyrir skráningar á Mannamót sem fer fram 28. janúar nk. í kórnum í Kópavogi. Menningar- og atvinnumálanefnd hvetur ferðaþjónustuaðila á svæðinu til að kynna sér þetta og skrá sig.