Fundur nr. 3
Kjörtímabilið 2026—2030
Kjörtímabilið 2026—2030
Skrifstofa Vopnafjarðarhrepps kl. 11:00
Björn Ingimarsson ritaði fundargerð
Skúli Þórðarson
FormaðurSara Elísabet Svansdóttir
NefndarmaðurOddur Pétur Guðmundsson
NefndarmaðurIngólfur Daði Jónsson
NefndarmaðurKristín Jónsdóttir
NefndarmaðurBjörn Ingimarsson
Starfandi sveitarstjóriBjartur Aðalbjörnsson
Forstöðumaður þjónustumiðstöðvarInn á fundinn kom forstöðumaður þjónustumiðstöðvar, Bjartur Aðalbjörnssson, og fór yfir skýrslu varðandi verkefni er hann telur mikilvægt að ráðast í á næstu árum.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar forstöðumanni þjónustumiðstöðvar kynninguna og þá samantekt er hann hefur unnið. Samþykkt að vísa skýrslunni til fjárhagsáætlunargerðar til skemmri og lengri tima.
Samþykkt samhljóða.
Fyrir liggur erindi frá HMS varðandi endurskoðun húsnæðisáætlunar fyrir árið 2027.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð felur sveitarstjóra að láta vinna tillögu að endurskoðaðri húsnæðisáætlun fyrir árið 2027 og stefnt verði að því að endurskoðuð áætlun verði lögð fyrir fund umhverfis- og framkvæmdaráðs til afgreiðslu eigi síðar en í janúar 2027.
Samþykkt samhljóða.
Fyrir liggur samantekt skipulagsráðgjafa á lagfæringum á gögnum aðalskipulags Vopnafjarðarhrepps 2040.
Lagt fram til kynningar.
Fyrir liggja fundargerðir stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 486 og 487.
Lagt fram til kynningar.
Fyrir liggur erindi frá N1 ehf. þar sem óskað er eftir leyfi til að stækka eldsneytisgeymi úr 10m3 í 20m3 geymi á bryggju þar sem geymir fyrir bátaafgreiðslu er staðsettur og að nýr geymir verði færður á nýsteypt plan við hliðina á eldri geymi.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að verða við fyrirliggjandi ósk um stækkun eldsneytisgeymis úr 10m3 í 20m3 auk staðsetningar. Forstöðumanni þjónustumiðstöðvar falið að sjá til þess að brugðist verði við erindinu og að unnið verði samkvæmt núgildandi reglugerð.
Samþykkt samhljóða.