íbúðir til leigu við Skála­nes­götu á Vopna­firði

Vopna­fjarð­ar­hreppur auglýsir tvær vand­aðar og full­búnar íbúðir við Skála­nes­götu til leigu. Íbúð­irnar eru eins að stærð og gerð og eru lausar til afhend­ingar.

Um er að ræða bjartar og vel skipu­lagðar tveggja herbergja íbúðir, hvor um sig 55,9 fermetrar, með einu svefn­her­bergi, stofu, eldhúsi og baðher­bergi.

Helstu upplýs­ingar um íbúð­irnar:

  • Tveggja herbergja íbúð (eitt svefn­her­bergi), samtals 55,9 fermetrar að stærð.
  • Verönd er fyrir utan stofu. Í stofu og eldhúsi er hátt til lofts (u.þ.b. 3,2 m).
  • Húsin eru timb­urhús með einhalla þaki, dökkgrá timb­urklæðning er á útveggjum. Gluggakarmar eru úr PVC.

Íbúð­irnar eru í timb­ur­húsum með einhalla þaki, dökk­grárri timb­urklæðn­ingu og PVC-gluggum.

Umsókn­ar­frestur er til og með 27. nóvember 2026.

Umsóknum skal skila á skrif­stofu Vopna­fjarð­ar­hrepps, Hamra­hlíð 15, Vopna­firði, eða með tölvu­pósti á skrif­stofa@vfh.is.